I only wanted to be wonderful to be wanted by you...
Prófin eru byrjuð eða alveg að byrja, fyrsta prófið er á mánudaginn. Fyrsta af mörgum. Ég er samt ekki stressuð. Ekki ennþá. Afhverju? Ekki hugmynd.
Það að setjast niður og lesa skólabók hefur haft mjög neikvæð áhrif á getu mína til að hafa mannleg samskipti. Ég hef einnig tekið eftir þessu hjá öðrum þegar prófin byrja. Þegar fólk gefur sér smá pásu til að hittast og slæpast getur það eiginlega ekki talað um neitt því ekkert er mikilvægt. Það er eins og fólk sé að hugsa ,,Bíddu þú ert ekki glósubók, hvað er ég að eyða tíma í þig?". Stundum stend ég mig að því að hugsa þegar ég er að hlusta á einhvern röfla um líf sitt :,, þetta skiptir engu máli þetta er ekki til prófs". Ég missi fullkomlega einbeitninguna og fer að pæla í einhverju allt öðru eins og gasfastanum. PV=nRT...
Annars er reyndar bara eins og heilinn í mér sé fullkomlega tómur þegar lesturinn hljómar ekki í hausnum á mér eins og þreytt og aðeins rispuð plata. Er ekkert þarna?