« Home | Ég fór í Kringluna í dag það er svo sem ekkert m... » | Nú þegar bílarnir státa vígtönnum og grasið hefur... » | Looking in my own eyes I can't find the love I wan... » | Snjokorn falla a allt og alla, bornin leika og ske... » | Mmmm... sól sól skýn á mig... súkkulaði... Ben... » | Ég hata netbankann minn ég hata hann! Ég hef ald... » | I only wanted to be wonderful to be wanted by you.... » | Someone, somewhere, someone, somewhere, someone wa... » | Á meðan prentarinn minn prentar út skýrslu sem mér... » | Örblogg » 

fimmtudagur, febrúar 22, 2007 

Ekkert klám á íslandi!!!

Mikið fannst mér fyndið þegar mér var sagt að nú væri búið að reka burt þá er ætluðu að sækja klámráðstefnu hér í Reykjavík. Mikil pressa stjórnvalda og almennings olli því að hótelrekendur sáu ekki hag sinn í því að bjóða þessu fólki upp á gistingu.
Þetta er hinn klassíski tvískinningur. Ég fór í Hagkaup um daginn þar var heil hilla tileinkuð klámblöðum ,já klámblöðum það var ekkert erótískt við þetta, og ekkert er sagt við því. Í smáauglýsingar í blöðum eru fullar af auglýsingum fyrir síma kynlíf þar sem stundum eru tilteknir einhverjir sérstakir kynlífsórar. (Reyndar líka auglýsing um að hægt sé að redda pólverjum í öll störf en það er annað mál.) Úti á götu sé ég auglýsingu sem auglýsir klámmyndir á tilboðsverði og handjárn. Afhverju er þetta leyfilegt en ekki þessi ráðstefna?
Auðvitað er það rétt að það eru ekki allir sem vinna við klámiðnaðinn af fúsum og frjálsum vilja en á þá að banna kaffi? Súkkulaði? Nike fatnað? o.s.frv.
Þeir sem starfa við að tína kaffibaunir eru í langflestum tilfellum þrælabörn sem gera það fyrir fæði og húsnæði og ekkert meir á fáránlegum vinnutímum og aldrei fá þau frí.
Er það bara vegna þess að klámiðnaðurinn er eitthvað sem skaðar fólk í hinum vestræna heimi sem það veldur okkur áhyggjum? Ef við ætlum að banna þetta þurfum við þá ekki alvarlega að íhuga hvað ætti að vera leyfilegt? Hefur þú skoðað hvaðan kakóbaunirnar í súkkulaðinu sem þú borðaðir koma?

Links to this post

Create a Link