Ég fann samt hina fullkomnu umgjörð. Hún er svört og glær ferkönntuð úr plasti ég veit það hljómar ekki vel en hún er fáránlega flott og jú eins og ég gaf í skyn áðan alveg fááránlega dýr. En það er samt spurning hvort ég spreði sumarlaunum mínum í þau þar sem þau eru alveg geðveikislega flott.
Eftir að við vorum búnar að skoða gleraugun fórum við aftur að bílnum okkar (ég og mamma fórum saman ef þú ert að velta því fyrir þér) en þar sem gleraugnaverslunin er staðsett í miðbænum þurftum við að leggja við stöðumæli. Þegar við erum svona 100m frá bílnum sjáum við stöðumælavörðinn á leið að bílnum okkar. Ég gríp næsta hundrað kall og hleyp sem var hægara sagt en gert þar sem ég var á 10cm hælum og ég næ að koma að bílnum áður en stöðumæla vörðurin kom að bílnum. Málið var samt bara það að stöðumælavörðurinn var að koma úr áttinni sem bíllinn okkar var. Við vorum komnar með sekt og þessi hlaup höfðu verið til einskis.
Mér finnst samt að ég ætti að fá verðlaun fyrir besta tíma fyrir 100m sprett á hælum.
Where you leave I will follow any anywhere where you tell me to if you need you need me too be with you I will follow where you leave.