« Home | part 2 Ég fann samt hina fullkomnu umgjörð. Hún e... » | Is he breathing? » | She is a fortunate fool » | She's got a smile that it seems to me. Reminds me ... » | Mig langar að læra að dansa salsa, tangó, rúmbu...... » | A singer in a smokey room. A smell of wine and che... » | NEI HÆTTU AÐ GRÍTA Í MIG SYKURMOLUM!.. ó þetta er ... » | Johnny wanna be a big star, get on stage and play ... » | Loksins loksins hvítlaukur? » | Hello is it God? What up dog?! It's your favourite... » 

föstudagur, maí 19, 2006 

Part 1

If you are all alone feeling lonley and so cold, all you have to do is call my name and I'll be there on the next train...

Ég elska gleraugu og að máta gleraugu og að vera með flott gleraugu.

Verst er að þau eru stjarnfræðilega dýr. Ég er mjög nærsýn og þar af leiðandi þarf ég að ganga um með flöskubotna gleraugu ef ég borga ekki himinháar upphæðir fyrir að þær séu þynntar svo ég tali nú ekki um umgjarðirnar sem að ég er spenntust fyrir því að þær eru já fáránlega dýrar. Hum... Þetta fæ ég fyrir að vera hégómleg eins og vinur minn orðaði það svo smekklega um daginn.

Einn galli enn er sá að af einhverjum ástæðum dettur engum í gleraugnaverslunum í hug að ég gæti mögulega þurft á þeirra hjálp að halda eða almennri aðstoð. Nema þeir haldi að ég ætli mér að brjóta eitthvað en þá þurfa þeir að standa yfir mér og anda í eyrað á mér. *hrollur*

frh. í næsta blogginu hér fyrir neðan.