Ég er í fríi. Það er ekki eins skemmtilegt og það hljómar. Ég sit bara hérna með kjölturakkann og horfi á The Wedding date og reyni að forðast það að hnerra yfir allan skjáinn.
Sum ykkar hugsa kanski ,, en ég væri alveg til í að stija heima á sloppnum horfandi á væmnamynd." Jú jú það er yndælt svona í einn dag en núna leiðist mér alveg gííífurlega. Ég er eina manneskjan sem er í fríi og ég verð í fríi þangað til 6.júní. Ég er búin að gera allt sem mér dettur í hug að gera og auk þess er ég orðin svo kvefuð að ég get ekki andað með nefinu hvað þá talað sómasamlega. Mögulega er ég með kvef vegna þess að hvítlaukurinn er dauður hver veit.
Mig langar svo að fara í almennilegt partý og djamma eilítið svona til að fagna því að ég er búinn með hálfa (vonandi) menntaskólagöngu mína. Ég verð samt að viðurkenna að ég er farin að leiða hugann að því hvað ég ætla að gera þegar ég er orðin stúdent.
Oh.. ég elska fötin í The Wedding Date, mig langar í fleiri kjóla og enn langar mig að læra að dansa!