« Home | Fallegur dagur í dag finnst þér ekki ? Fullt af bí... » | Ég er í fríi. Það er ekki eins skemmtilegt og það ... » | Part 1 If you are all alone feeling lonley and so... » | part 2 Ég fann samt hina fullkomnu umgjörð. Hún e... » | Is he breathing? » | She is a fortunate fool » | She's got a smile that it seems to me. Reminds me ... » | Mig langar að læra að dansa salsa, tangó, rúmbu...... » | A singer in a smokey room. A smell of wine and che... » | NEI HÆTTU AÐ GRÍTA Í MIG SYKURMOLUM!.. ó þetta er ... » 

mánudagur, maí 29, 2006 

Nenni ekki að finna lagatexta....

Fyrsti dagurinn minn í "nýrri" vinnu var í dag, þ.e. ég er að vinna á Sóltúni eins og ég hef gert í allan vetur en ég er bara að gera aðra hluti.
Það er skrítið hvernig fyrsti dagurinn í vinnunni gerir mann úrvinda! Ég er búin að vera í fríi í meira en viku og sofa helming tímans en samt var ég uppgefin þegar ég kom heim. Ég verð samt farin að ganga af fullum krafti á sólarorkunni eftir nokkra daga.

Það gæti haft eitthvað með það að gera hvað það var molluheitt í dag, allaveganna þar sem ég var. Það er nefninlega algert logn á svölunum í vinnunni og sólin skín inn um glugganna og gerir allt steikjandi heitt. Það var varla munur á hitanum úti og inni og ég var að deyja. Eins yndælt og það er að hafa gott veður og sól þá er það líka stundum frekar óþægilegt ef það er ekki allavega smá gola. Ég er ekki mikil hitamanneskja.

Það er samt æðislegt að komast út úr skólastofunni í smá tíma og gera eitthvað annað, sérstaklega þar sem að ef að maður er jafn þreyttur og ég var í dag þá er engin heimavinna og maður getur fengið sér lúr :-P
Bla bla blablabla bla...