Ég er yfirleitt ekki hrædd við geitunga og alls ekki við bíflugur en akkúrat núna er ég skíthrædd við geitung sem er inni á baði og er á stærð við... eyrað á mér. Ég var bara þarna inni í friði og spekt að greiða mér og heyrði ekkert grunsamlegt suð þegar ég lít allt í einu upp þarna er hann í rólegheitunum... tilbúin að fljúga á mig og stinga!
Ég er skíthrædd við hann, ég þori ekki að veiða hann í glas og setja blað fyrir. Ég þori ekki einu sinni að fara þarna inn til að spreyja hann með hárlakki. Ég er algjör skræfa, ég veit, en hann er bara svo stór :S
Update: ég fór þarna inn og spreyjaði á hann hárlakki og núna er hann bara virkilega pisst off! Hann er ekki einu sinni vankaður þannig að ég geti veitt hann, hann er bara pirraður :S