Ég sit hér núna fyrir framan tölvuskjáinn og blogga, sem er mjög sjaldgæft og í raun bara virkilega óvenjulegt miðað við tíma dags árstíma og dagsetningu.

Síðustu daga hef ég gert ósköp lítið nema hugsa og horfa á sjónvarpið. (Fyrir utan eitt virkilega skemmtilegt partý með TKD-pakkinu) Eftir því sem ég hugsa meira kemst ég að því hvað það er í rauninni óþarfi að hugsa ég meina sjáiði allar pöddurnar og dýrin sem eiga víst ekki að hugsa mikið. Í það minnsta eru þau ekki að íhuga hvað öðrum finnst um þau eða hver tilgangur lífsins er og þau hafa það fínt.
Ekki eru þau að vandræðast í hverju þau eiga að vera þennan daginn eða hvort það sé þess virði að læra heima eða að taka til neeei. Þau bara gera þá hluti sem þau þurfa að gera og gera hina bara til að skemmta sér eða vernda sig.